Þegar kemur að æfingum eru því miður sumar sem geta gert meira slæmt heldur en gott fyrir líkamann. Oft er það vegna þess að það er ekki gert rétta hreyfingu.
Machine leg extension: Þessi æfing gerir ekkert gagn fyrir þig. Ef þú hugsar út í það, hvenær situr þú og sparkar fótunum upp í loftið? Það gerir þú bara í ræktinni. Þetta er ekki eðlileg hreyfing fyrir líkamann og hnén eru ekki gerð til að halda þyngd á þennan hátt, sem getur leitt til meiðsla. Betri kostir: hné beygja, deadlift, step-ups og lunges. Behind-the-head lat pulldown: Þegar þú ert að gera lat pulldowns þá ætti stöngin alltaf að vera fyrir framan þig, annars er hætta á meiðslum í öxlunum. Ef þú togar stöngina fyrir aftan þig er mikið álag á fremri hluta axlaliðarins. Betri kostir: Toga stöngina fyrir framan þig. Smith machine hnébeygjur: Hnébeygjur í þessu tæki veldur því að bakið stendur alveg hornrétt við gólfið. Það þjappar saman hryggjarliðum og af því að þú þarft að halla þér mikið aftur er mikið álag á hnén. Betri kostir: Hnébeygjur með líkamsþyngd eða lyftistöng. Þá ert þú ekki með þennan stöðugleika frá tækinu heldur notar magavöðvana. Ab machine: Þegar þú notar þetta tæki er dregið verulega úr notkun kviðar. Í staðinn notar þú meira af höndum, öxlum og fótleggjum til að gera hreyfinguna. Þetta tæki reynir ekki mikið á styrkleika í kviðnum og dregur úr áhrifum æfingarinnar. Betri kostir: Bicycle crunches eða crunches á æfingabolta. |