Það þarf ekki að hreyfa sig mikið til að halda heilsunni í lagi. Hálftíma kraftleg ganga á hverjum degi nægir fyrir fullorðið fólk. Árangur hreyfingar á ekki eingöngu að vera metin eftir útliti og þyngd. Þegar þú ferð út að labba hrynja kílóin ekki beint af þér en áhrif heilsufars þíns eru heilmikil. Ef hreyfingarleysi á sér stað geta verið margir kvillar sem fylgja.
Hreyfingarleysi veldur fimmta hverju hjarta-og æðasjúkdómstilfelli, sjöunda hverju tilfelli ristilkrabbameins, tíunda hverju heilablóðfalli og tilfelli brjóstakrabbameins sem dæmi má nefna.
Innan aðeins 10 daga verða breytingar í heilanum. Það stafar af því að hreyfing hefur áhrif á heilastarfsemina og hjálpar meðal annars við aldurstengdu minnisleysi. Í tímaritinu Frontiers in aging Neuroscience var rannsakað hvernig þetta hafði áhrif á langtíma hlaupara. Niðurstöður sýndu að lækkun var á blóðflæði til hluta heilans sem kallast hippocampus sem er hluti heilans tengdur minni og tilfinningum. Eftir tvær vikur er orðið erfiðara t.d. að labba upp stigann eða gera aðra daglega hluti. Þegar fjórar vikur eru liðnar og þú hefur ekkert hreyft þig má búast við að styrkur þinn minnki en sumt fólk upplifir það aðeins eftir 2 vikur. Styrkur endist lengur en þol eftir að þú hættir að æfa. Vöðvamassi getur minnkað á aðeins tveggja vikna hvíld vegna hreyfingarleysis. Samanlögð hreyfing skiptir mestu máli því þeir sem hreyfa sig reglulega lifa að meðaltali 3-5 ár lengur og losna við ýmis veikindi. Þeir sem eru yfir 65 ára og stunda hreyfingu einu sinni í viku minnka áhættu á ótímabærum dauða um 40%.