Sumt fólk gerir hvað sem er til að missa kíló. Það fer á svokallað ,,diet‘‘ þar sem það annað hvort hættir að borða ákveðinn mat eða minnkar skammtana verulega. Væntingar fólks eru oft mjög háar eftir að hafa lesið grein á netinu þar sem er sagt að hægt sé að missa 5 kíló á 5 dögum. Hins vegar hefur það enga hugmynd um að þau munu fá leið á þessu mataræði og komast í hið sama far að lokum. Því miður er ennþá fólk sem trúir á svona skyndilausn og veit ekki betur. Best er að tileinka sér heilbrigðan lífstíl með því að breyta venjum sínum hægt og rólega og þannig er hægt að halda sig við það. Gott er að gera t.d. matardagbók þar sem þú skrifar allt það sem þú borðar niður. Ef þú setur þér markmið með að hreyfa þig reglulega og hefur gaman af því er mun líklegra að þú náir árangri.
Mataræði er mun mikilvægara en hreyfing. Þú gætir hreyft þig marga klukkutíma á dag en skortir gott mataræði. Það er mikilvægt að borða hollan og næringarríkan mat til að fá næga orku. Hollt mataræði og hreyfing spilar saman og er þá best að hugsa um bæði. Fyrir erfiða æfingu þarft þú að fá kolvetni, prótein, holla fitu og vatn. Vöðvar þurfa kolvetni til að fá aukna orku, það fæst í t.d. brauði, pasta, hrísgrjónum, ávöxtum og grænmeti. Þú þarft prótein fyrir vöðvana og blóðfrumurnar sem veitir næringu og súrefni. Vökvi er nauðsynlegur til að halda líkamanum gangandi. Ef þú borðar fjölbreytt getur þú verið viss um að fá öll vítamín og næringarefni sem líkaminn þarf. Unninn sykur leynist í mörgum matvörum nú til dags en hann gerir ekkert gagn fyrir líkamann. Hann myndar fitu um líffærin og getur valdið alvarlegum sjúkdómum. Sykur er mjög slæmur fyrir tennurnar og eykur líkur á sykursýki og hjartaáfalli.
Það eru til mismunandi matarræði eins og Lacto-vegetarians (borðar mjólkurvörur), Pescatarians (borðar fisk), Lacto-ovo vegetarians (mjólkurvörur og egg eru leyfð), Vegans (engar dýravörur eru leyfðar).
Það er umdeila í gangi um að grænmetisætur eigi erfiðara með að byggja upp vöðva. Margir halda að það þurfi kjöt til að fá stóra vöðva en það fæst alveg jafn mikið prótein úr plönturíkinu. Grænmetisætur eru oft með miklu meiri orku því þau borða fjölbreyttara heldur en kjötætur. Flestar grænmetissætur segja að þær finna fyrir miklum jákvæðum breytingum.