Líkamleg hreyfing skiptist í fjóra flokka: Þol (bætir öndun og hjartslátt), styrkur (gerir vöðvana sterkari), jafnvægi (heldur líkamanum uppi) og sveigjanleiki (teygir á vöðvunum). Allir þessir þættir spila stóran þátt í líkamlegri starfsemi. Fólk er mismunandi og líkar því ekki öllum t.d. að hlaupa eða lyfta. Það er hægt að fá hreyfingu annars staðar og er úr mörgu að velja. Það snýst aðallega um að hafa gaman og þá er líklegra að fólk haldi sig við það. Mismunandi tegundir af hreyfingu: * hlaupa * hjóla * yoga * dans * lyftingar * ræktin * sund * skíði * bolta-íþróttir * bardagaíþróttir * spinning o.s.f.v.
Ég og Petra höfum æft dans í langan tíma og það er eitthvað sem við báðar höfum gaman af. Dans fær mann til að gleyma allri þreytu því það eina sem þú hugsar um er að dansa í takt við tónlistina og læra hreyfingarnar. Í Dansskóla Brynju Péturs þar sem við æfum er nemendum kennt góða tækni og einnig allt um dansstílana. Við teljum þekkingu á sögu og menningu dansstílana vera mikilvægur grunnur fyrir áframhaldandi nám og túlkun í dansi. Sýnt er fram á að dans bæti stöðugleika og eyki vellíðan. Að dansa fær hjartað til að slá hraðar, dæla blóði hraðar út í líkamann og hjálpar þér líka að komast í form. Dans minnkar stress og spennu fyrir bæði huga og líkama. Eftir að hafa byrjað í dansi höfum við fundið fyrir miklum breytingum bæði líkamlega og andlega.
Önnur vinsæl hreyfing er svokölluð lotuþjálfun (HIIT) sem stendur fyrir high intensity interval training. Margir íþróttamenn stunda hana því hún hefur borið mikinn árangur. Lotur geta verið alveg frá 15 sekúndum til 4 mínútna. Þessi þjálfun er öðruvísi en stöðug þjálfun að því leiti að þú reynir mun meira á líkamann. Þegar borið er saman þá sem æfa lotuþjálfun og þá sem stunda stöðuga þjálfun sést að hámarkssúrefnisupptaka eykst um helming hjá þeim í lotuþjálfun. Dælugeta hjartans eykst og lotuþjálfun virðist hafa góð áhrif á æðarnar. Fleiri hvatberar myndast í vöðvunum og æðarnar verða fleiri og teygjanlegri. Stutt æfing er ekki endilega létt, ef þú reynir mikið á þig er það mun erfiðara heldur en að æfa stöðugt í klukkutíma.
Margir njóta þess að fara út að hlaupa enda lyftir það skapinu. Að hlaupa veitir þér hamingju og vinnur gegn kvíða og þunglyndi. Ótrúlegt en satt þá getur það líka minnkað líkurnar á krabbameini í framtíðinni og tryggir þér lengra líf. Að hlaupa er ein besta leið til að brenna kaloríur og missa aukakíló því þú ert að nota mest megnis af líkama þínum.
Fatnaður Þegar kemur að æfingafötum er mikilvægt að vanda valið. Föt geta breytt því hvernig þú stendur þig á æfingum á marga vegu. Það er mikilvægt að velja föt sem anda í gegn svo þú svitnir ekki jafn mikið. Föt úr polyester, lycra og spandex virka vel. Það er í lagi að vera í fötum úr bómul svo lengi sem þú svitnar ekki mikið. Bómull er þægilegur í að ganga eða teygja. Þegar þú ert að velja fatamerki er best að leita að vönduðum vörum sem endast lengi eins og t.d. nike. Það er gott að velja sérstök föt eftir því hvaða æfingar þú ert að gera. Skór eru einnig mikilvægir til að verja fætur og ökkla.